Selá í Steingrímsfirði
Selá
Selá í Steingrímsfirði er dragá og ein af vatnsmestu ám á Vestfjörðum. Hún á upptök sín á Ófeigsfjarðarheiði í um 500 m hæð yfir sjávarmáli og rennur á mörkum Kaldrananesshrepps og Strandabyggðar í Strandasýslu.
Vatnasvæði árinnar er mjög fallegt og býður upp á fjölbreytt veiðisvæði. Margir fallegir veiðistaðir eru í Selá og í boði eru 1–4 flugustangir yfir veiðidaginn. Mest hafa komið um 100 laxar á land.
Góð afþreying er stutt frá: veitingastaðir, sundlaugar og náttúrupottar. Fátt er betra en að skella sér í góða slökun eftir góðan dag í veiði. Ekkert veiðihús fylgir veiði og er fluguveiðimönnum bent á gistingu og sundstaði í nágrenninu.
Veiði fyrir vestan er spennandi og krefjandi kostur, og Selá er tilvalinn veiðistaður fyrir fjölskylduna eða unga sem aldna veiðimenn í fluguveiði. Hvernig hljómar fluguveiði í Selá á Ströndum? Selárdalur tekur vel á móti þér!
- Veiðitímabil
- 15. júlí – 30. september
- Veiði
- Bleikja og lax
- Meðalveiði
- 200 bleikjur og 40 laxar
- Fiskgengd
- Um 20 km upp ána
- Stangir
- 1–4 á dag, eingöngu fluga
- Frá Hólmavík
- 15 km
- Frá Reykjavík
- 230 km
Myndir
Veiðireglur
Veiðistjórn Selár hefur tímabundið breytt veiðireglum til að ná betra jafnvægi í vatnakerfi árinnar. Við viljum hlúa að náttúruperlunni okkar og vonum að veiðimenn taki vel í breytingarnar, sem skila sér vonandi í enn skemmtilegri og gjöfulli á.
- Stangir
- 4 á dag
- Agn
- Eingöngu fluga á flugustöng
- Kvóti
- 2 bleikjur undir 40 cm á stöng á dag
- Lax
- Öllum laxi sleppt, hnúðlax drepinn
- Veiði bönnuð
- Í Þjóðbrókargili og hliðarám Selár
- Veiði leyfð
- Ofan við efsta veiðistað, nr. 19 Hvanneyrarfljót, að Ófæru
Hvar er Selá?
Selá er í Strandasýslu, 230 km frá Reykjavík og 15 km frá Hólmavík.
Gisting
Ekkert veiðihús er við Selá.
- Malarhorn í Drangsnesi malarhorn.is
- Hótel Laugarhóll í Bjarnarfirði, 12 km laugarholl.is
- Hólmavík í Steingrímsfirði, 15 km booking.com
Sundstaðir
Laugar og pottar í nágrenninu.
- Bjarnarfjörður laugarholl.is
- Drangsnes, fjörupottarnir drangsnes.is
- Hólmavík strandabyggd.is
Vefsala Selár
Allt að fjórar stangir á dag, í heilan eða hálfan dag.
Veiðileyfi má einnig bóka í síma 867-5111.
Veldu vaktir
Smelltu á vaktina sem þú byrjar á og svo á vaktina sem þú endar á. Hver dagur skiptist horn í horn: efra hornið er fyrri vakt, það neðra seinni vakt.
júlí 2027
| Mán | Þri | Mið | Fim | Fös | Lau | Sun |
|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | 2 | 3 | 4 | |||
| 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
| 12 | 13 | 14 | ||||
- Laust
- Valið
- Uppselt
- Virkir dagar
- 18.000 kr. heill dagur · 9.000 kr. hálfur
- Helgar og helgidagar
- 22.000 kr. heill dagur · 11.000 kr. hálfur
Verð er á stöng.